Um Vöku hf Björgunarfélag

Vaka var stofnuð árið 1959 og er því eitt elsta fyrirtækið í bílabransanum á Íslandi. Fyrirtækið hóf starfsemi sína með dráttarbíla að fyrirmynd Falk þjónustunnar í Danmörku en vegna smæðar landsins þurfti að aðlaga starfsemina. Í dag starfar fyrirtækið á hinum ýmsu sviðum sbr.

  • Er með bílaflutninga á höfuðborgarsvæðinu
  • Eitt öflugasta dekkjaverkstæði landsins
  • Selur ný og notuð dekk
  • Heldur uppboð á vegum Sýslumanns
  • Selur notaða bílavarahluti
  • Bílaförgun
  • Öflugt bílaverkstæði
  • Dekkjahótel

Vaka rekur dekkjaverkstæði og hjólbarðasölu á tveimur stöðum á höfðuborgarsvæðinu: í Skútuvogi 8 í Reykjavík og á Smiðjuvegi 28 í Kópavogi.  Á báðum stöðum er ríkulegt úrval dekkja í öllum gæðaflokkum.

Sumar opnunartími verslunar Vöku er sem hér segir:

8.00-18.00 mánudag - föstudag.

10.00-14.00 laugardaga (á aðeins við um Skútuvog)

Lokað sunnudaga

Til að hafa samband við Vöku má hringja í síma: 5676700